Croque Monsieur - Grilluð samloka

Sendandi: Smári (Smári Sæbjörnsson) þann 02/10/2010
Croque Monsieur - Grilluð samloka 2062 fléttingar
3.45 stjörnur
40 atkvæði
 
 
Prenta
Prenta hráefnislista
Senda vini

Einkunn

Samlokan Croque Monsieur var fyrst gerð árið 1910. Á íslandi er hún meira þekkt sem grilluð samloka með skinku og osti.

Mynd og heimild: wikipedia


Hráefni

2 msk Dijon sinnep
8 stk brauðsneiðar
250 gr skinkusneiðar
2 1/2 bolli Gruyere ostur, hægt að nota Gouda
4 msk smjör

Aðferð

Hafið hita á steikarpönnu við lágan hita. Smyrjið dijon sinnepið á brauðið og setjið skinku og ost á milli (geymið smá ost til að setja á toppinn) og leggið samlokurnar saman.

Setjið smjörið á pönnuna og steikið þar til samlokurnar eru orðnar gullinbrúnar. Athugið að um leið og önnur hliðin er orðin tilbúinn, þá setjið smá af ostinum ofan á og látið vera ofan á samlokunni á meðan það er verið að steikja hina hliðina.

Matarskammtur

Fyrir 4 samlokur
 

Ummæli

 
 

Skrá ummæli

 
Óskráðir notendur geta ekki skráð ummæli
Umsjónarmenn uppskriftavef Freisting.is Hafðu samband: uppskriftir@freisting.is