Kremuð Dijon kjúklingabringa

Sendandi: Smári (Smári Sæbjörnsson) þann 02/16/2010
Kremuð Dijon kjúklingabringa 1658 fléttingar
2.36 stjörnur
47 atkvæði
 
 
Prenta
Prenta hráefnislista
Senda vini

Einkunn



Hráefni

1 msk olía
4 stk kjúklingabringur, skinnlausar
1 stk Campbells kjúklingasúpa ( ca. 280 gr. )
1/2 bolli vatn
1 msk Dijon sinnep
1 msk hvítvín
1 msk steinselja, söxuð (Má vera þurrkað)
1 msk púðursykur
1/2 tsk laukduft
1/4 tsk Estragon, söxuð (Má vera þurrkað)
1 tsk hvítlauksduft

Aðferð

Hitið olíu á pönnu og setjið kjúklingabringurnar í pönnuna og steikið báðum megin í um 10 mínútur í það heila.

Setjið súpuna, sinnepið, hvítvínið, steinseljuna, púðursykurinn, lauk og hvítlauksduftið, estragon í pönnuna og látið suðuna koma upp og lækkið aðeins hitann og sjóðið síðan niður til helminga eða þar til að sósan er orðin kremuð og kjúklingabringurnar tilbúnar.

Flokkur/Tegund

Kjúklingaréttur

Matarskammtur

Fyrir 4
 

Ummæli

 
 

Skrá ummæli

 
Óskráðir notendur geta ekki skráð ummæli
Umsjónarmenn uppskriftavef Freisting.is Hafðu samband: uppskriftir@freisting.is