Lambarifjur með cous cous og steiktu grænmeti |
|||||||
| Sendandi: Smári (Smári Sæbjörnsson) þann 02/24/2010 | |||||||
|
|||||||
Einkunn |
|||||||
|
|
|||||||
HráefniLambarifjur200 gr lambarifjur 1 stk rósmaríngrein 1 stk hvitlauksgeiri 50 ml olía Cous cous 100 gr cous cous 200 gr vatn 1 teningur af kjúklingakrafti 20 gr graslaukur 20 gr kóríander Steikt grænmeti 30 gr gulrót 30 gr seljrót 30 gr zucchini 30 gr papríka 30 gr laukur Rauðvínssósa 200 ml nautasoð 50 ml rauðvín 10 gr gulrót 10 gr laukur 5 gr hvítlaukur AðferðLambarifjurRósmarín og hvitlaukur sett í matvinnsluvél ásamt olíu og maukað. Þessu er síðan smurt á lambið, það brúnað á pönnu og sett inn í ofn á 120 gr þar til kjarnhiti nær 58°C. Cous cous Vatn sett í pott og suðan fengin upp, þá er kjúklingakrafti bætt við og hann leystur upp. Síðan er vökvanum hellt yfir cous cous-ið, lok sett yfir og beðið í 5 mín., þá er kryddjurtum bætt við. Steikt grænmeti Grænmeti er skorið í teninga og steikt á pönnu, kryddað með salti og pipar. Rauðvínssósa Grænmeti sett í pott og svitað, rauðvíni hellt út í og soðið í 1 mín., þá er soðinu bætt við og látið sjóða í 5-10 min. Sósan er síðan sigtuð og krydduð til með salti og pipar (má þykkja með maizena ef fólk vill þykkar sósur). Vídeó (embed) / AnnaðSteinar Bjarki Magnússon, matreiðslumeistari í Veisluturninum í Kópavogi, sýndi listir sínar í 3. þætti Eldhúss meistaranna 25. janúar 2010 og bauð upp á humar og lamb.Flokkur/TegundKjötréttur |
|||||||
Ummæli |
|||||||
Skrá ummæli |
|||||||
| Óskráðir notendur geta ekki skráð ummæli |
