Stir-Fry Kjúklingur með heimalagaðri Teriyaki sósu |
|||||||
| Sendandi: Smári (Smári Sæbjörnsson) þann 02/26/2010 | |||||||
|
|||||||
Einkunn |
|||||||
|
|
|||||||
|
Höfundur: Völundur Snær Völundarson hjá www.thebasiccookbook.com Gerist aðdáendur á Facebook síðu "The basic cook book" hér HráefniTeriyaki Sósa:60 ml soya sósa 240 ml vatn 1/2 tsk engiferduft 1/4 tsk hvítlauksduft 5 msk púðusykur 1-2 msk hunang 2 msk maizena mjöl 60 ml kalt vatn Kjúklinga Stir-Fry: 900 gr beinlausar kjúklingabringur, skornar í þunna strimla 1 meðalstór rauðlaukur, skorin í strimla 1 græn paprika, skorin í strimla 1 rauð paprika, skorin í strimla 2 bollar kál (rautt eða hvítt), skorið í strimla 2 sellerístilkar, skornir í bita 3 gulrætur, skornar í strimla 4 msk olía 1 lítil dós af ananasbitum 240 ml Teriyaki sósa AðferðTeriyaki sósa:Blandið saman á pönnu soya sósu, 240 ml af vatni, engiferdufti, hvítlauksdufti, púðursykri og hunangi. Steikið á miðlungshita. Í bolla skal blanda saman maizena mjöli og 60 ml af köldu vatni. Blandið saman og notið til að þykja sósuna í pönnunni eftir þörfum. Ef að sósan verður of þykk má þynna hana með vatni. Stir-Fry kjúklingur: Skerið kjúklinginn í þunna strimla og leggið til hliðar. Skerið grænmetið einnig í þunna strimla, setjið í aðra skál og leggið til hiðar. Steikið kjúklinginn á pönnu upp úr 2 msk af olíu uns hann verður gullinbrúnn að lit. Setjið afganginn af olíunni á Wok pönnu og steikið grænmetið þar til það er orðið mjúkt. Blandið þá kjúklingnum, ananasnum og teriyaki sósunni. Blandið vel saman og steikið í 2-3 mínútur. Bætið við teriyaki sósu eftir þörfum. Borið fram með hrísgrjónum - eða steiktum eggja-hrísgrjónum - sjá Egg Fried Rice. uppskrift á TheBasicCookbook.com. Flokkur/TegundKjúklingarétturMatarskammturFyrir 6 manns |
|||||||
Ummæli |
|||||||
Skrá ummæli |
|||||||
| Óskráðir notendur geta ekki skráð ummæli |
