Soðið lambakjöt með rótargrænmeti í Fricassé |
|||||||
| Sendandi: Smári (Smári Sæbjörnsson) þann 03/01/2010 | |||||||
|
|||||||
Einkunn |
|||||||
|
|
|||||||
Höfundur: Sverrir Halldórsson, matreiðslumeistari
Hráefni1,5 kg Lambaframpartssneiðar á beini0,7 kg Kartöflur 150 gr Gulrætur skrældar og skornar í teninga 150 gr Gulrófur skrældar og skornar í teninga 150 gr Sellerírót skræld og skorin í teninga 100 gr Perlulaukur 150 gr Sveppir skornir í fjórðunga 100 gr Grænar baunir frosnar ½ stk Sítróna bara safinn ½ peli Rjómi 50 gr Hveiti 50 gr Smjör ½búnt Steinselja fersk söxuð fint Salt og pipar AðferðSkolið kjötið vel í köldu vatni og setjið í pott ,látið vatnið fljóta yfir kjötið og látið suðuna koma upp, fleytið ef með þarf. Látið svo sjóða við vægan hita þar til kjötið er meyrt.Á meðan er grænmetið flysjað og skorið í teninga er kjötið hefur soðið í hálftima eru kartöflurnar settar í pott og soðnar, eftir það er rótargrænmetið forsoðið og látið rjúka, látið soðið af grænmetinu sjóða áfram til að nota í sósuna ef þurfa þykir. Þegar kjötið er soðið er það fært upp úr pottinum og haldið heitu, soðið bakað upp með smjörbollunni, sítrónusafanum bætt út í, smakkað til með salt og pipar eftir þörfum, þá er grænmetinu bætt út í og látið sjóða í 3-4 mínútur og að lokum er rjómanum bætt út í. Flokkur/TegundKjötrétturMatarskammturFyrir 5 |
|||||||
Ummæli |
|||||||
Skrá ummæli |
|||||||
| Óskráðir notendur geta ekki skráð ummæli |
